Svolitið síðan ég skrifaði..

Já, það er svolítið síðan ég var hérna inná síðast og margt vatn runnið til sjávar síðan þá.

Þessi önn langt komin og meira en nóg að gera!! En ég rakst á áhugavert efni What if?

What if the movie, ekki ósvipað the secret. En góð umhugsun.

Published in: on mars 20, 2009 at 10:40 am  Rita ummæli  

Magnað að horfa á þetta myndband

Ég verð að segja að þessi maður er stórkostleg mannvera!

Published in: on desember 12, 2008 at 12:39 pm  Rita ummæli  

Joomla

joomlagrein Það var áhugavert að kynna sér joomla. Þar skráði ég mig inná esjan.com sem notandi eins og Salvör talaði um. En það tók ekki langan tíma að átta sig á þessu og ég gat náð í mynd af minni tölvu og hlaðið þar inn. Joomla er opinn hugbúnaður sem er mjög faglegur og notendavænn. Stórsniðugt fyrir fyrirtækni, skóla og aðrar stofnanir að nýta sér þetta forrit. Það er líka ókeypis sem er gott nú á tímum. Ég set hér inn sýnishorn af greininni minni sem ég setti inn á joomla. Nú styttist líka óðum í jólin og kveikt á fyrsta aðventukertinu í gær þannig að það er smá fróðleikur um aðventukertin.
Kveðja Linda Björg

Published in: on desember 1, 2008 at 12:21 pm  Rita ummæli  

Dimdim fundur

Dimdim fundur var að enda hjá okkur á netinu og sá fundur gekk vel. Ekkert vandamál með hljóðið. Við vorum að fara yfir lokaverkefnin sem á að skila til mats fyrir önnina. Joomla er kerfi sem Salvör vill að við skoðum þó ekki nema rétt að kynnast þetta er efnisveitukerfi sem er gott fyrir t.d vefsíður skóla og fyrirtækja. Við eigum að skrá okkur inn sem notendur en ekki að hlaða niður eins og ég hélt fyrst. Þannig að það verður næsta skref ásamt því að fara yfir listann hvort ég sé búin að skila af mér hinum ýmsu verkefnum hér í nemandinn á netinu. Þannig að ég er formlega að drukkna í verkefnum núna :( En best að vera jákvæð og skipulögð. Eina mínútu og einn dag í einu. Kveðja Linda

Published in: on nóvember 24, 2008 at 7:07 pm  Rita ummæli  

Tuxpaint og Scratch

Ég hef prófað tuxpaint og scratch frá því síðasta vor og eru það mjög sniðug forrit til að nota í grunnskólum.Hér set ég inn dæmi um myndir sem ég gerði síðasta vortuxpaint-mynd í tuxpaint.

Mjög margt skemmtilegt hægt að gera með nemendum. Leyfa þeim að stimpla, teikna og búa til texta.

Hér kemur er svo mynd úr scratch:

scratchmynd

Margir skemmtilegir möguleikar til í scratch og þá er hægt að gera sína eigin teiknimyndasögu.

Það er mjög skemmtilegt að nota Paint þar er hægt að teikna inn og nota mjög marga fítusa og ég lærði það nú ekki fyrir löngu að ég get tekið mynd að tölvuskjánum hjá mér og opna svo í paint og paste þá kemur myndin sem var á skjánum hjá mér. Svo fer ég og ákveð hvernig ég vil hafa myndina(alla eða hluta) og klippi það og set á nýja síðu í paint og vista hana svoleiðis í möppu hjá mér og svo get ég sótt myndina og hlaðið henni inn eins og ég gerði hér.

Kveðja Linda

Published in: on nóvember 24, 2008 at 12:07 pm  Rita ummæli  

Lokablogg Connectivism

Ég hef tekið þátt í connectivism námskeiðinu og fylgdist stýft með því og las fullt af greinum sem margar hverjar voru ansi fræðilegar og torlesnar. Ég skráði mig á póstlistann í upphafi og fékk daglega sent The Daily sem Stephen Downes sendir út og þar kom svona púlsinn á því sem var að gerast og þær umræður sem hann tók saman. Það er ekki hægt að segja annað en að ég lærði ótrúlega mikið á því að taka þátt í þessu námskeiði því það var ekki bara lesefnið sem ég var að lesa heldur var ég líka að prófa fullt af forritum, nýjum vefum og spjallvefum sem var bent á að sniðugt væri að prófa. Ég hafði ekki prófað neitt af þessu áður sem dæmi má nefna að þau forrit sem ég prófaði var t.d Pageflake.com, bliptv, moodle sem ég skráði mig inn á vegna þess að það er mikið notað á námskeiðinu, twitter, technorati(þó væri ekki nýtt)þá hafði ég aldrei áður séð það forrit sem er mjög sniðugt og margt fróðlegt og nýtt þar fyrir mér. Einnig má nefna Second life sem ég skráði mig þó ekki inná en skoðaði. Facebook er eitthvað sem ég er komin á fullt í núna sem var stundum verið að spá í á námskeiðinu þegar var fjallað um félagsnetin sem við sköpum okkur. You tube er eitthvað sem ég er líka mikið á núna sem ég hafði ekki mikið notað áður fyrr. Þeir félagar notuðu líka Ellumiate.com en ég var meira á moodle og fylgdist með. Svo má nefna ustream þarf sem fyrirlestrarnir þeirra G.Siemens og S. Downes o.fl sem komu við sögu voru settir inn og ég hlustaði oft á þar. Að mínu mati lærði ég mikið á því að vera skoða ný forrit og vefi sem gerði það að verkum að ég er ekki eins hrædd við það að prófa mig áfram með nýja hluti. Það var mikið rætt um hvernig þekking á sér stað og hvernig við byggjum hana upp sem voru skiptar skoðanir á oft á tíðum, Það var einnig mikið fjallað um félagsnetin hvernig við sköpum okkur þau net og það að net eru alls staðar í kringum okkur. Hópar var mikið rætt og netin og hver munurinn er á því. Groups=hópar er samheldni, gildi, lokað, takmarkað, dreift/úthlutað og ójafnrétti. Erfitt að fá nýjungar í gegn. Networks=netin eru tengd, fjölbreyttni, sjálfstjórn, opið úthlutun/dreift, jafnrétti. Það var einnig mikið rætt um vefinn og hvernig hann þróaðist frá upphafi. Web 1.0 og web 2.0 sem er erfitt að setja beint fram því það eru ekki allir á eitt sáttir með það hugtak web 2.0 og skiptar skoðanir með það en mín skilgreining er sú að þarna er verið að tala um þróunina sem hefur átt sér stað frá því að vera web1.0 þar sem fáir gátu búið til/skapað á vefnum í það að vera web2.0 þar sem allir geta tekið þátt og skaðað. Heimurinn orðinn litill og fólk getur unnið jafnvel saman í vefsíðum þó fólk sé í sitthvorri heimsálfunni. Vefurinn er orðinn mjög notendavænn í dag. Félagsvefir, vidéó, myndavefir, o.fl. Sama og með connectivism. Hvað er það? Erfitt að svara því beint en að mínu mati er það hvernig við tengjum þekkingu saman og náum að átta okkur á því efni sem við erum að læra. Ný þekking byggist ofan á aðra og það skiptir máli að geta tengt saman og áttað sig á því hvað er verið að læra. Það er talað um að þetta eigi sér stað líffræðilega, hugtakalega séð og félagslega. Við formum/búum til tengingar við upplýsingarnar/þekkinguna og Þekking dreifist í gegnum net af tenginum og afleiðingin er að það tengist saman og verður ný þekking. Þetta er ansi flókin að mínu mati og eins og ég sagði ekki allir sammála um hvernig þetta á sér stað. En það skiptir máli að geta áttað sig á að allir læra ekki eins sérstaklega ef maður er kennari að gefa nemendum sínum færi á því að læra á þann hátt sem hentar hverjum best. Skapa góðar aðstæður fyrir nemendur og það að umræða við nemendur um hvað er þekking og hvernig lærum við best er góð umræða svo nemendur séu meðvitaðir um það hvernig þeir læra. Hvert vilja nemendur stefna með markmiðum um nám sitt. Kennari þarf að hafa fjölbreytta kennsluhætti og nám þarf að vera áhugavert og hvetjandi fyrir nemendur. Einnig skiptir miklu máli samvinna kennara og það að kennarar skiptist á hugmyndum ef góðar hugmyndir eru á sveimi. Svona síðustu vikurnar hef ég ekki mikið verið að taka þátt í námskeiðinu enda máttum við það en ég stiklaði samt á stóru yfir restina og tók þá eftir því að þar er komið út í að spá í hver þróunin verður með netið, netkennslu=elearning og hvert hlutverk kennara kemur til með að verða í framtíðinni. Það er víst alveg á hreinu að miklar breytingar hafa átt sér stað og eru margar rannsóknir í gangi um áhrif netsins og tölvuheimsins. Nám getur farið fram á netinu og kennari er meira í leiðbeiningar hlutverki en áður. Það má líka nefna þann aragrúa upplýsinga sem eru á vefnum og stöndum við frammi fyrir því að velja og hafna eftir áhugasviði tel ég því ég segi fyrir mig að ég verð hálf rugluð í öllu þessu hafi upplýsinga sem er á vefnum og velja og hafna. Það er einnig talað um þann vanda sem kemur upp um höfundarétt og það að taka efni annars og gera að sínu. Þetta er eitthvað sem á eftir að taka og skoða betur. Það er líka spurning um siðferði, persónuvernd og margt fleira sem við stöndum frammi fyrir þegar allt er gert opinbert á netinu. Já ekki hægt að segja annað en að það er margt umhugsunarvert þegar heimurinn er svona litill. ;)

Held ég láti þetta gott heita um connectivism.

Kveðja Linda

Published in: on nóvember 24, 2008 at 10:52 am  Rita ummæli  

Styttist í lokin á námskeiðinu

Þá er að styttast í lokin og ýmsilegt að klára. Ég var á dimdim fundi í gær sem gekk ekki alveg því það voru hljóðvandamál sem geta komið upp en þá færðum við okkur í Pronto sem er notað svona til að hafa samskipti sín á milli hér í skólanum en þar gat ég bara skrifast á við Ósk og Salvöru það voru einhver hljóðvandi þar líka en svo er ég að búin að klára ýmis verkefni sem eru metin eins og vefrallý,

vefrallyvefleiðangur og námsvef um googleverkfærin sem er ætlaður fyrir nemendur til að læra á googledocs sem er svipað word og googlesites sem er mjög sniðugt til að búa til vefsíðu en það fór nú góður tími í þann vef því ég er byrjandi í vefsíðugerð og lág í hjálpinni til að koma mér áfram. En svona þegar ég lít tilbaka þá var gaman að grúska í því og ég hef lært mjög mikið á því einmitt að grúska og fikra mig áfram með vefsíðugerðina. Þannig að það er allt frá núna. Ég bætti samt svo aðeins við vefinn á google Því ég lærði það þegar ég var að setja inn á wiki að taka myndir á skjánum mínum í tölvunni og ákvað að nota sömu aðferð á googlevefinn sem kemur miklu betur út og þá er líka meira af myndum og leiðbeiningum. Ég er líka miklu sáttari við vefinn svona. Svo er ég búin að vera vinna í wikisamverkefninu þar sem við setjum inn efni fyrir nemendur sem geta hjálpað þeim að vinna í officepakkanum(word, excell, powerpoint) Ég reyndi að gera þetta líflegt fyrir nemendur sem vildu kynna sér word kennsluleiðbeiningar þarna inná wiki. Það er gaman þegar maður lærir eitthvað nýtt og þarna lærði ég að taka myndir af skjánum hjá mér og setti svo texta með. Þannig að wikiverkefnið er bara nokkuð líflegt og vonandi gaman fyrir nemendur að skoða og geta fylgt leiðbeiningum um word(office).

Já, svo má ekki gleyma að minnast á prófið sem var síðasta föstudag í Connectivism sem gekk bara nokkuð vel held ég og ég er mjög fegin að við erum búin með prófið. Þá er nú smá að saxast á verkefnin og stutt í lokaprófin….. ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.

Frábær dagur! Kveðja Linda Björg :)

Published in: on nóvember 18, 2008 at 11:08 am  Rita ummæli  
Tags: ,

Dimdimfundur

Það var dimdimfundur í gær og þar var margt rætt. Mikið talað um samvinnuverkefi um officepakkann sem á að gera í wiki en þar byrjum við að setja inn en það er ekki ætlast til að við klárum því það er ansi mikið efni svona ofan á öll hin verkefnin og svo það sem er í gangi í hinum námskeiðunum. Það styttist í lokin aðeins tvær og hálf vika eftir. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Salvör talaði líka um hversu mikilvægt það væri að passa sig að vera skráður inná wiki til að hún sjá hver er að vinna í síðunni. Þetta er mjög sniðugt kerfi þetta wiki þar sem allir geta unnið saman í síðu og gert skemmtilegt. Þetta verður námsefni fyrir unglingastig í officepakkanum. Ég sé það nú samt fyrir mér að þessi opnu kerfi muni koma í stað þess ef Microsoft setur þetta ekki fram þannig en það er komið þetta open office og það er í gegn um þá ef ég man rétt. Svo er líka mjög einfalt og sniðugt það sem Google er með það líkist officepakkanum er opið kerfi og þá er ég ekki bundin einni tölvu.

Prófið sem á að vera núna á föstudaginn var einnig rætt og lesefnið sem á að vera. Það er vika 1-8 í Connectivism námskeiðinu og líka að hafa til taks lesefni um Web 2.0 verkfæri.

Nú held ég að sé ágætt að halda áfram að lesa og læra. Kveðja Linda

Published in: on nóvember 11, 2008 at 9:36 am  Rita ummæli  
Tags:

Dimdim fundur

Þetta var góður fundur í dimdim í gær. Smá hljóðvandamál en það fylgir oft svona netfundum. Það var mikið rætt um samverkefnið sem fer í gang núna og einnig var rætt um prófið sem fer fram 14.nóv. Það er heimapróf sem verður úr völdum greinum sem Salvör ætlar að láta okkur vita hvaða greinar það verða.

Einnig var farið yfir þau verkefni sem á að vera búið að gera og það kemur ýtarlegri leiðbeiningar með kennsluáætlun þar sem tekið verður fram hvað á nákvæmlega að skila í lokin sem styttist nú heldur betur í þau. En nú er það bara að setja sig í gírinn og klára þau verkefni sem eru fyrirliggjandi.

Gaman að segja frá því að ég er farin að vera mun tæknivæddari og nota google docs til að glósa hjá mér/ eða nota word- orð eins og einn góður íslensku kennari notar hér í skólanum. Þannig að margt hefur breyst á ekki löngum tíma hjá mér.

Ég er búin að vera vinna í námsvef sem ég bý til í goggle sites og gengur vel þar tek ég fyrir googleverkfærin fyrir grunnskólanemendur og já líka sniðugur fyrir byrjendur eins og mig líka. Ég er búin að setja inn videó og krækjur í kennslumyndbönd frá Salvöru með hennar leyfi að sjálfsögðu. Svo var ég búin að búa til smá glærur um google í google docs. Þetta er mjög sniðugt forrit sem er ókeypis eins og ég hef sagt áður.

Kveðja Linda Björg

Published in: on nóvember 4, 2008 at 11:29 am  Rita ummæli  
Tags:

Áfram með smjörið og upp með fjörið

Þá er það búið vettvangsnámið og seinni staðlota. Búið að vera ansi mikil keyrsla síðustu þrjár vikurnar en gott að þetta er búið. Nú tekur við verkefni af ýmsu tagi og skipulag á tíma til að klára þetta allt fyrir lokin sem nálgast nú óðum. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!!

Það er ýmislegt í deiglunni eins og nú verður þráðurinn tekinn upp aftur í connectivism námskeiðinu vika 9 held ég að sé komin í gang þar. Svo er verkefni að fara í gang hér í Nemandinn á netinu í sambandi við officepakkann og gera námsvef. Það er líka margt að gerast í Nám og kennsluáfanganum og Tjáning og táknvísiáfanganum. Þannig að það verður nóg að gera næstu vikurnar sem eru að verða þær síðustu þessa önnina.

Ég hef aðeins verið að skoða það sem við fórum yfir í staðlotunni og skráði mig inn á Zoho.com þetta er nýtt forrit sem er með póstforrit, dagatal og svo svona svipað officepakkanum. Það er einnig hægt að vera með videó og myndir ef ég skil þetta rétt. Mjög líkt google verkfærunum þar sem margir geta unnið saman í skjali og margt hægt að gera. Þetta er ókeypis svo Microsoft er kominn með marga verðuga andstæðinga og fólk getur hætt að kaupa þennan officepakka hjá þeim því þetta er orðið frítt bara inná netinu. Mjög hentugt þar sem fólk er ekki bundið við eina tölvu heldur getur farið inná í hvaða tölvu sem er og haldið áfram. Ég er einnig búin að vera skoða þetta og skrá mig í 3f Félag um upplýsingatækni og menntun þeir eru núna líka komnir inná facebook. En það er margt fróðlegt að skoða þarna hjá 3f.

En það er endalaust nýtt að bætast við og þá má líka tala um það sem Salvör sagði okkur líka frá og það er open office sem er er annað ókeypis forrit svipað zoho og microsoft office . Þannig að það er eins og ég sagði komin mikil samkeppni við microsoft office sem enn er verið að borga fyrir að nota.

Það verður svo dimdim fundur með Salvöru í dag kl. 18.00 sem ég mun blogga um í kvöld.

Jæja þá bara halda áfram… Verum jákvæð og styðjum hvert annað á erfiðum tímum. Ekki gott ástandið í þjóðfélaginu!! Kær kv.Linda Björg

Published in: on nóvember 3, 2008 at 11:16 am  Rita ummæli  
Tags:
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.